Thursday, 30 December 2004

Afhverju þarf fólk að vera ósammála mér...

Arrg, þó svo að ég sé feiminn og segi aldrei nei þarf ekki að misnota vináttu mína og góðsemd.

Wednesday, 22 December 2004

Ég féll fyrir ljósmynd!!

Ekki er allt sem sýnist, ekki þú ekki ég erkki vinir okkar, maður getur aldrei vitað hvort maður er að sjá allar hliðar hvers máls...

Það sem ég á við er ástæður fólks á gjörðum þess. Þegar einhver er góður við mig, er hann
þá góður við mig af vináttuástæðum eða er annar tilgangur með góverkunum. Vill manneskjan greiða á móti? eða safna punktum uppí framtíða greiða? eða kannski bara vinna veðmál?

Það er víst ekkert hægt að gera í þessu, ef ég er með vinum mínum labba svo í burtu, hvort er þá talað fallega eða ila um mig?? Eitt er víst að það fæ Ég hugsanlega aldrei að vita... nema einhver missi það útúr sér.

Trust a few fear the rest!!

P.S. Er lúðalegt að verða hrifinn af ljósmynd af menneskju sem maður hefur aldrei hitt né talað við?? Mér var líkt við Amelie um daginn, er það ekki soldið hennarlegt að falla fyrir ljósmynd?? Er ég karlkyns Amelie?? Fæ ég þá ást og frábært kynlíf bráðum??

Úff þetta líf!

Monday, 20 December 2004

Hmmmm??

Þegar mér langar að hitta manneskju þá reyni ég að fá hana með mér á kaffihús, í heimsókn til mín, fara sjálfur í heimsókn eða bara msn-ast.

Þeir, Þær og Þau sem vilja hitta mig fara alltaf í vinnuna til mín...

Ef ég væri kennari, myndi þá fólk koma að trufla kennsluna, þegar ég er að vinna er ekki séns að ég geti talað við fólk, þó svo að ég sé bara kaffibarþjónn þá er ekki þarmeð sagt að ég geti hætt að vinna og tekið mér pásu hvenær sem er.

Ef fólk vill hitta mig þá vil ég geta hitt það á móti, ég er með sófa og tvo stóla í stofunni minni, kaffikönnu og svo á ég tónlist, getur verið mjög kósý og jafnvel skemmtilegra að hitta mig heima en á Kaffitári. Nema að ég sé það leiðinlegur að fólk vilji bara horfa á mig í vinnunni...

Allir í heimsókn til Þrumusteins!

Gjafir og regnbogar

Í gær vaknaði ég alltof seint og drattaðist í vinnuna, fattaði að Hebbi frændi væri með húfuna mína og trefilinn svo ég varð að taka strætó. Þið skiljið seinna hvað þetta kemur blogginu við...

Í matarhléinu mínu fór ég í ECCO og var að tala við áslaugu afgreiðslustúlku um að ég þyrfti að fá mér hlýrri skó og sýndi henni hina skóna mína svona létt. Hún sá að það var sprunga í sólanum og spurði mig hvað ég hefði átt skóna lengi og ég sagði sjö mánuði. -"Skórnir eiga ekkert að brotna svona þú færð nýja skó!" sagði hún ákveðið. Ég var alveg í klessu ég kom þarna til að kaupa skó en fæ þá líka í leiðinni mína skó bætta því þeir voru léleg hönnun. Núna er ECCO og starfsfólk þess í miklu uppáhaldi hjá mér og ég elska þau. Ekki er verra að það er gaman að horfa á þau... allavega eitt þeirra... ég er ekki að tala um frænku mína!

Seinna um kvöldið vantaði mér frímerki og fór í IÐU, sæti afgreiðslumaðurinn var ekki að vinna, en það breytir engu svosem, ég fór að segja við afgreiðslukonuna sem er einnig eigandinn að mér væri svo kallt því ég væri húfulaus... hún gaf mér "Mjólk er góð"-húfu sem er mjög hlý og æðislega mjúk. 'eg hefði átt að fara í fleiri búðir í gær, fólk var greinilega í miklu gefaÞralli-stuði.


Ég fór svo áðan í 10-11 til að kaupa mér morgunkorn... varð hissa á því að augun mín leituðu ekki að bragðbesta morgunkorninu heldur var ég að leita að morgunkorni með leikfangi inní, svona ókeypis. Sá þá að Lucky-Charms regnboginn, sá sem er í lógóinu er gayfáninn en ekki alvöru sjó lita regnbogi, hafðiði líka tekið eftir að regnbogi Pink Floyd er gay-regnboginn? Skondið þetta.

Alvöru ÖrkinhansNóa-Regnbogi er með litunum Rauður, Appelsínugulur, Gulur, Grænn, Indigo, Blár og Fjólublár
Gayfáninn hins vegar er ekki með indigo. Þar hafiði það.

Saturday, 18 December 2004

10-11

Ef þú kæri lesandi hefur komið í tíuellefu nýlega hefur þú kannski tekið eftir nýju aðstoðslínunni þeirra. ..

Ég var í tíuellefu fyrir nokkrum dögum, rétt fyrir lokun og ekkert að gera, ég fann mér vörurnar mínar og valhoppaði í átt að kassanum, þegar þangað var komið var enginn starfsmaður, svo ég fór að lesa á miða sem festur var á hann:
Fannstu allt sem þig vantaði?
Ef ekki getur starfsmaður á kassa hjálpað þér.
Þetta fannst mér sniðugt og sá að starfsmaðurinn var á leið til mín, einnig hann var valhoppandi líkt og lítil alpastelpa. -"Fannstu allt sem þig vantaði?" var setningin sem barst til mín í stað hinnar venjulegu -"Var það eitthvað fleira?" sem jú getur varla átt við annað en sígarrettur, nema hvað að nýja setningin á við um allar vörur verslunarinnar.
Ég hélt ég mundi springa úr hlátri þegar ég heyrði þetta því strákurinn á kassanum var ekki svona gaur sem myndi detta þetta sjálfur til hugar :) og það sem fyndnast var, var að ég var einmitt nýbúinn að ljúka við að lesa þessa sömu setningu.

Sniðugt þetta og frumlegt finnst mér, áfram tíuellefu!

Tuesday, 14 December 2004

Aðfangadagur Piparsveinsins

Ef að jólin væru hátíð friðar og frelsis þá liti aðfangadagurinn komandi svona út hjá Þralli

-"Bjölluhljóð eins og í draumasenum í bíómyndum"-

Snemma aðfangadags vaknar Þrallur við vekjaraklukkuna, ýtir á snúshnappin og sefur aðeins lengur. Næst þegar vekjaraklukkan í símanum æpir á hann drattast hann á lappir, skellir sér í hressandi sturtu, klæðir sig í jólavinnufötin, burstar tennurnar vel og vandlega og fær sér heitan, ljúffengan jólahafragraut.

Þarnæst fer hann í hlýju mosagrænu úlpuna sína, skó, húfu, gyðingatrefil og tveggja þumla vettlingana sína. Gengur af stað út í mjallhvítan jólasnjóinn og andar að sér köldu frísku aðfangadagslofti. Ekkert er betra en smá kuldi til að losna við hálfþynkuna sem stafar af rauðvínsdrykkju kaffibarþjónanna eftir vinnu kvöldið áður. En meir um það síðar.

Eftir vinnu fer hann heim kveikir á sjónvarpinu, skellir vídjómynd í tækið, setur samt ekki á plei, leggur sig í einn til tvo klukkutíma, vaknar svo, sest upp í rúminu, tekur upp fjarstýringu og ýtir á plei, Home Alone 1 er myndin sem byrtist á skjánum, Þrallur fyllist gífurlegri löngun til að sprauta vatni á útitröppurnar, festa málningardollu fyrir ofan dyrnar og alls kyns stórhættuleg prakkarastrik eins og litli drengurinn í myndinni.

Um leið og myndin er búin hlustar hann einu sinni á "Ég er eins og ég er" á meðan hann klæðir sig aftur í útifötin. Hann ætlar nefnilega að taka sér langann göngutúr kringum tjörnina þar sem örugglega ekki nokkur sála er úti á þessum tíma aðfangadags. Hann vill fyllast sömu tilfinningu og Kalli sem var einn í heiminum, sú saga var í miklu uppáhaldi hjá Þralli, þegar hann var yngri en í dag.

Svo þegar jólagöngutúrinn er búinn er best að fá sér smá snarl, jólamat, en ekki þennan hefðbundna, Þrallur borðar ekki kjöt þannig að honum langar helst af öllu í smá sushi eða kannski kartöflugratín. Að því loknu ætlar hann að fara að undirbúa jólakvöldkaffið fyrir Haffa og Örnu sem ætla að kíkja í heimsókn eftir jólaserimóníu fjölskyldna þeirra.

-"Bjölluhljóð eins og í draumasenum í bíómyndum"-

Þessi 20 jól sem ég hef upplifað hingað til hef ég: Verið á Hofsósi ásamt báðum foreldrum mínum, Reykjavík með bara mömmu, Garðabæ, Bäraregatan Norrköping, Viking Line skemmtiferðaskipi, Silja Line skemmtiferðaskipi, Reykjavík með pabba, með mömmu í Söderköping, hjá systrunum í Mora, Hólmavík með pabba, Schalegatan Norrköping með mömmu, Bråddgatan Norrköping með mömmu og fleira...
Ég vona að ég fái að upplifa þennan draum því það er ekki víst að ég verði piparsveinn miklu lengur og ekki get ég gert þetta,þegar ég verð kominn með fjölskyldu, þá vil ég eiga eðlileg jólajól.

Monday, 13 December 2004

Góðan daginn Heiðar!!

Smá einkahúmor...

Thursday, 9 December 2004

Argasta læknakerfi!

Ég hef alla tíð verið misskilinn og hataður af læknum, sendi örugglega frá mér frískleikabylgjur sem láta lækna missa allan áhuga á mér.

Vil taka það fram að ég er ekki að ásaka læknirinn sem manneskju heldur ekki ráðast á neinn, finnst bara leiðinlegt að vera hent burt eins og ég sé rúmfatalagersbæklingur.

Þegar ég var saklaus tveggja ára snáði, var ég mjög veikur, það var farið með mig til læknis en ekkert fannst... hann er örugglega með flensuna var svarið við grenjandi barninu sem var að farast úr sársauka. Aftur og aftur var ég skoðaður, en ekkert kom í ljós... þar til dag einn að einhver læknagaur sá mig, spurði hvar sársaukinn væri, ýtti þar svo af öllu afli og sagði að þetta barn þarf að fara í aðgerð núna, hann er kviðslitinn!... er ennþá með ör, sem bara fáir fagrir fá að sjá...

Alla bernsku mína eftir þetta var ég mjög oft veikur, ælandi og vælandi, mamma fór með mig uppá sjúkrahús að meðaltali einu sinni í mánuði frá fimm ára aldri, læknarnir fundu alls konar flensur að kenna um en að lokum var ég greindur með mjólkursykuróþol... eftir að hafa verið reglulega veikur í mörg ár, þegar þetta kom loksins í ljós var ég níu ára. Ég hvorki át né drakk mjólk í heilt ár, en svo batnaði óþolið. Kom síðan aftur í sumar.

Núna á mánudaginn síðasta fékk ég þessa svakalegu hálsbólgu, var bara heima í kósý fíling með vini mínum Haffa að horfa á Big Fish... ekki besta mynd sem ég hef séð... enívei! Þriðjudaginn gat ég hvorki borðað né drukkið, var að deyja, fór ekki í vinnuna að sjálfsögðu. Svaf síðan ekkert um nóttina og ákvað að fara til læknis morguninn eftir.

Það er kannski betra að segja frá því að ég hef ekki orðið veikur síðan níu ára þannig að ég hringdi í vinnuna og spurði hvað ég ætti að gera... fara á næstu heilsugæslustöð var svarið. Ég klæði mig, fer í skó og fer í Domus Medica sem var það fyrsta sem mér datt til hugar. Konurnar þar á þjónustuborðinu voru voða uppteknar við að slúðra en ákváðu eftir smá stund að gera smá hlé og aðstoða manneskjuna sem truflaði samræðurnar, þær benda mér á að ég ætti að fara að hitta heimilislæknirinn minn... bamm bamm bamm... Þrallur á engann heimilislækni... bamm bamm bamm... Þá segja þær mér að ég þurfi að sækja um einn slíkan á tryggingastofnun. Ég segist ekki hafa tíma fyrir það þar sem ég þurfi læknisaðstoð strax, að ég sé ekki búinn að borða í tvo daga. Þær benda mér þá á að fara á bráðamóttökuna.

Fúll og fárveikur geng ég í áttina að bráðamóttökunni og þegar þangað er komið er mér að ég sé á röngum stað, sagt að fara til heimilislæknisins míns... bamm bamm bamm... ég á engann heimilislækni!... bamm bamm bamm... einn læknirinn þarna neyðist til að skoða mig, gerir tveggja sekúndna skoðun og gefur mér lyfseðil. Og labbar, eða frekar hleypur í burtu. Ég lít á lyfseðilinn í von um að það standi á honum hvar ég eigi að leysa hann út... hef aldrei gert svona áður en það stendur ekki. Fæ að lokum lyfið mitt og fer heim.

Daginn eftir, fimmtudag, fatta ég að ég þarf læknisvottorð fyrir veikindunum... fer í tryggingastofnun... -"Ha?? Þú færð engan heimilislækni hér." Ég segi konunni að mér var bent á að fara til þeirra en hún segir ekki geta hjálpað mér. Þarnæst fyllist ég reiði, vonsvikni og uppgjafartilfinningu, sest og segist ekki vera búinn að borða í þrjáoghálfan dag og að enginn vilji hjálpa mér bara því ég eigi ekki heimilislækni. Konan vorkennir mér og fer og finnur fyrir mig hvert ég á að fara og hvað ég eigi að gera þar.

Ég hringi í númerið hjá heilsugæslunni sem hún bendir mér á og fæ tíma strax og fer þangað, fæ heimilislækni og vottorð fyrir vinnuna. Læknirinn getur samt ekki skoðað sjúkdóminn sjálfan því ég var kominn á fíklalyf, sem læknirinn sem hafði engan tíma fyrir mig hennti í mig.

Gat byrjað að borða aftur um kaffileitið á fimmtufdaginn. Nú sit ég hér, ennþá á fíklalyfjum og veit ekkert hvað var að mér. Endurtek að ég hata ekki alla lækna, finnst ég bara ekki hafa gert neinum neitt það svakalegt að eiga þetta skilið... eða hvað??

Monday, 6 December 2004

Foreldrakvöld

Foreldrar geta verið svo frábærir, það var foreldrakvöld í gær hjá Ungliðum Samtakana 78, og það mætti gomma af foreldrum, aðallega mömmur samt. Þau töluðu um hvað þau væru stolt af börnunum sínum, játuðu líka að hefa fengið sjokk þegar barnið kom út úr skápnum. Vildi að mínir foreldrar hefðu komist en mamma er náttúrulega í Svíaríki og pabbi útí sveit, þau verða bara með símleiðis næst, hehe.
Ég átti erfitt með að grenja ekki þegar ég sá þessa yndislegu foreldra tala um samkynhneigð börnin sín og ein mamman sagði að helst vildi hún segja öllum frá því að hún ætti samkynhneigðan son, það eru nú ekki allir svona heppnir.
Þegar tvær manneskjur ákveða að eignast barn þá verða þau að íhuga að barnið gæti, fæðst fatlað, ofvirkt, einhverft, örfhent og/eða samkynhneigt. Ef manneskjan sem íhugar barneignir getur ekki hugsað sér að elska einstakling úr þessum hópum þá á manneskjan bara að fá sér fiskabúr!
Ég vona að einn daginn eigi allir jafn góða foreldra og ég!!

Sunday, 5 December 2004

Pöbbakönnun

Ég og Kolbrún Kaffitár fórum ásamt vinkonu hennar Guðrúnu á pöbbarölt á laugardagskvöldið, og þá meina ég Pöbbarölt!
Mér langar að segja frá skoðun minni á stöðunum sem við fórum á.

Dillon: Byrjuðum á Dillon sem er í gömlu húsi á laugarveginum, á sumrin er hægt að sitja úti í garðinum og drekka bjór. Dillon er mátulega sjúskaður, soldið trukkastemming. Andrea Jóns var að þeyta skífunum, hún situr uppi á hillu þegar hún er þarna til að fleiri geti komið og hlustað á hana, enda besti plötusnúður Íslands að mínu mati... Lifi amma rokk!!

Ölstofan: Mér finnst Ölstofan ljótur en kósí staður, nýtískulegur bar en gamaldags veggskraut. Það er amt flott að það eru mikið af sætum. Við fórum þarna og vorum spurð um skilríki (er það skrifað svona) Við öll þrjú ´83 og hleypt inn, settums og ég fór á barinn en þeir neituðu að selja mér áfengi því það væri 22 ára aldurstakmark inn á staðinn... þá spyr maður sig afhverju okkur var hleypt inn til að byrja með!! Þessi staður hefur líka visst tilfinningagildi fyrir mér þar sem ég hitti fyrstu ástina þarna... -roðnar-

11: Ellefan er staður sem ég hef bara komið á tvisvar, annað skiptið var ég blind fullur, klæddur sem Zoolander og hitt skiptið var á laugardaginn. Ég er ekki búinn að komast að því hvað heillar við Ellefuna, kannski er það fussball spilið á efri hæðinni

Kaffibarinn: Kaffibarinn er frábær, tónlistin fer mér og skemmtilegt að sitja á efri hæðinni og spjalla, gerðum það lengi í gær. Húsgögnin þar minna á íbúðina mína. Ég og Kaffibarinn höfum sama stíl. Ókosturinn við þennan stað er að það er oft röð og vinum dyravarðanna hleypt inn á undan.

Grand Rokk:
Grand Rokk er góður staður fyrir tónleika, ég sá einu sinni hljómsveitina Hjálmar spila þarna og alveg féll fyrir þessum stað.

Celtic Cross:
Það skemmtilegasta við Celtic Cross að mínu mati er litla herbergið með kirkjubekkjunum, borðið við bekkina er líkkista og svo er orgel líka, svo hittir maður ólíklegasta fólk þarna.

Sirkus:
Sirkus er staður asnalega fólksins, hehe, fólk sem gengur í lopapeysu, er með hormottu og er hálf hippalegt. Ég fer oft á Sirkus og er hálf asnalega hippalegur sjálfur, var að eignast ýkt flotta lopapeysu af afa í gær, er samt ekki með hormottu.

Prikið:
Prikið er staður sem við á Kaffitár stundum á fimmtudögum eftir vinni, fáum okkur Prikbjór á 250 krónur. Prikið er einn af mínum uppáhalds stöðum, fór oft þangað með krökkunum á Maru. Hitti einmitt Hrefnu Rósu súperkokk og Iðunni þjón þarna í gær, við vorum að vinna saman á Maru. Prikið er líka með góðar franskar!

Nelly´s:
Nelly´s er staður með hundleiðinlega tónlist, en samt er hann mjög vinsæll og hálfkrúttlegur. Ég fór oft þarna þegar ég var skápur því þá var enginn gaybar og ég horfði á alla hommana dansa á Nelly´s.

Barir sem ég stunda aldrei eru, Sólon, Glaumbar, Hverfisbarinn, Pravdabarinn, Palace og Felix.
Segi svo næstu helgi skoðun mína á Jóni Forseta, Café Cozy, De Boomkikker, Hressó, Kaffibrennslunni, Café Cultura, Þjóðleikhúskjallaranum, Mojito o.fl.
Góða nótt

Friday, 3 December 2004

Veðurvesen

Veðrið á klakanum getur ekki ákveðið sig, eina stundina er brjáluð snjókoma og næstu er snjólaust og slabb, svo snjóar aftur oní slabbið og Frigg búin að búa til meiriháttar grjónagraut handa Óðni.
Ég var ýkt duglegur í gær, skellti mér í World Class eftir vinnu. Þeir sem ekki enn hafa séð mig teigja á ættu að hringja í mig næst þegar ykkur vantar skemmtun, ég er stirðari en Stekkjastaur, hef aldrei hitt neinn stífari en mig... hehe... þorir einhver að reyna að toppa mig í stirðleika??

Það eru nú til allskyns keppnir á klakanum, afhverju ekki "landsins stirðasti"?? Það er nú til Fitness mót, Herra Ísland, Glíma og allskonar, ég vil að þessi keppni verði tekin upp... og hafa veglega vinninga!!

Tuesday, 30 November 2004

Gagnkvæm Ást, er hún til??

Ég vildi að tilfinningarnar mínar gætu tekið sér smá pásu, ef einhver sem mér líst vel á sýnir minnsta áhuga á mér nánast gleypi ég manneskjuna, hræddur um að missa af einhverju, hef ekki verið frægastur fyrir ástarlífið... alltaf jafn bældur... hversvegna ég?
Held ég hafi klúðrað mörgu þetta árið með æsingi, verð að fara að læra á þetta, hef bara aldrei fundið ást þar sem ástin kemur frá báðum aðilum... Hvernig er sú tilfinninig?

Erfið og skemmtileg helgi.

Jamm ég var á leiðinni á djammið á föstudaginn, ætlaði hitta fólk en það týndist og ég fann mér bara nýja félaga og fór á forsetann. Þar var mjög leiðinleg tónlist en skemmtilegt fólk: Þar var einn fyrrverandi, nokkrir viljandi en enginn verðandi. Er það nógu góð lýsing á stemmingunni??
Svo fór ég í bíó með Magga bróðir á laugardaginn, "Christmas with the Kranks" núna langar mér svo að sleppa jólunum, hafa bara kósí fíling heima eða fara í ferðalag. Það væri svo gaman, ég þoli ekki nýtískujól þar sem allt snýst um að vera með mestu og flottustu skreytingarnar og kaupa sem dýrastar gjafir.
Ef einhver gefur mér jólagjöf þá gef ég hana í rauðakrossinn því ég fæ samviskubit fyrir að geta ekki gefið á móti, á nefnilega engan pening!! Ekki gera mér það. Senda frekar heimatilbúið jólakort, það þarf alltaf ást til að búa þau til.

Sunnudagurinn var líka mjög spes, fór í jólahlaðborð í Perlunni en þar sem ég borða ekki allan jólamat fékk ég ljúffengan venjulegan mat, sem var æði.

Friday, 26 November 2004

Virkir dagar...

Virku dagarnir eru oft séðir sem dagarnir til að vinna á og safna orku fyrir helgina, láta sér leiðast sem mest til að helgin verði fjörugri... er það reglan??

Ég get hérmeð sagt ykkur að svo sé ekki, ónei! Þessi vika er búin að vera einstök, alla helgina beið ég eftir að fá að komast á msn mánudagsmorgun klukkan níu, ég er ekkert búinn að snúsa alla vikuna og þeir sem þykjast þekkja mig vita að það er einstakt. Msn virka daga er mitt nýja hobbý.
Ekki nóg með það, á þriðjudagskvöld fór ég í ræktina, alveg svaka tappi mar, sýndi sko fólki hvar Davíð keypti ölinn. Miðvikudag var ég stressaður allan daginn, fannst ég vera lúðalegur, asnalegur og ljótur... var nefnilega að fara með myndarlegum pilti í kvikmyndahús um kvöldið, stóð mig samt betur en ég hélt ég myndi gera. Veit samt ekki hversu heillandi ég var. Fimmtudagskvöld fór ég á prikið með Kaffitári, svaka stuð, en fór alltof snemma heim, þóttist ætla í ræktina en endaði á Te & Kaffi í doppio á barnum. Missti af svaka fylleríi. Nú er föstudagskvöld, ég blindfullur heima hjá mér á leiðinni á djammið, var að horfa á Idol á HardRock og svo sund með mömmu á morgun...

Marta ég lofaði þér að reyna að styrkja sjálfsálitið, en akkúrat núna er það í bottni, ég reyni mitt besta. Þetta tekur tíma... ég reyni

Tuesday, 23 November 2004

Söfnunarárátta!!

Fólk hefur ýmis áhugamál, sumir eru í íþróttum, aðrir spila kana, vist eða canasta...

Ég safna, mitt aðaláhugamál er örugglega að safna! Ég hef alltaf safnað, öllu!, frímerkjum, viskaledrum, pónýhestum, törtles, umferðamerkjum, skátatreflum, asnalegum artí póstkortum, fönký nærbuxum!!, asnalegum fötum, skrítnum hlutum bara yfirleitt.

Sumir hafa oft velt fyrir sér hvernig ég fer að því að taka til einn daginn og næsta dag er íbúðin mín eins og eftir kjarnorkusprengju. Eina svarið sem ég finn er hirsluleysi, ég er að hugsa um að byrja að safna flottum og fönký hillum, skápum, kommóðum og kössum.

Ef einhvern vantar að losna við skemmtilegar hirslur þá skal ég með glöðu geði bæta því í safnið (vil samt helst ekki eitthvað fallegt og krúttlegt úr IKEA eða rúmfó).

Monday, 22 November 2004

Butterflies in my basket

Frábær helgi að baki, fór heim í alsælu eftir að fá koss sem ég bjóst ekki við. Laugardaginn komu Haffi og Arna í heimsókn og við skelltum okkur á Forsetann og tjúttuðum til morguns, ég er farinn að vera svo trylltur þegar ég dansa, I was all over da place! -sagt með indverskum hreim- held það sé því ég drakk ekki bjór, bjór gerir mig örugglega sljóann. Var meira að segja dansandi uppá palli, dansaði þar macarena, úff púff, meira að segja laus við snertifælnina. Eina sem vantaði um helgina var kúr, elska kúr.
Var ekkert þunnur sunnudag, hehe, dansaði allt það úr mér. Ungliðafundur um kvöldið, svaka stuð þar eins og venjulega, það verður foreldrakvöld næsta sunnudag... ef pabbi verður í Reykjavík ætla ég að draga hann og mömmu með... hún er by the way að koma til landsins, verður tvisvar sinnum 25 ára á laugardaginn, vúhú!
Birna ég gleymdi ekki afmælinu þínu, var bara aldrei nálægt síma eða interneti þegar ég mundi -skammast mín-

Stikkorð

græn augu, ásatrú, sushi, myndaögur, tattoo, feiminn, safnari, coca cola, appelsínugulur, leikhús/list, sóði, Bruce Willis, myndlist, Hárið, suðusúkkulaði, nærbuxur, alternative, Svíþjóð, föndrari, mömmubaunasúpa, snertifælni, skáti, stirður, hrútur, kaffibarþjónn, Wolverine, soya chai, hugsa of mikið... og ef ykkur dettur meira í hug, skrifa það þá í comments :)

Saturday, 20 November 2004

Ætlaði í ræktina...

Föstudagur og Idol eftir vinnu, horfi bara á það í ræktinni...
Það hélt ég en, Þórey Plo hriniri í mig klukkan nítján og býður mér tvo miða á Hárið... ekki séns að ég sleppi því, hringi í Hebba frænda og hann skellir sér í strætó, bara í vinnufötunum, við á sýninguna... púff... hópreið... púff... hass... púff... allir naktir... púff... ást... púff... sorg... úff!
Eftir sýninguna ákveðum við að dettíða, mér langar á skemmtilegan stað og Hebba langar að sjá þennan fræga Kaffibar sem hann komst ekki inná síðast. Ég legg rassinn í bleyti og höfuðið með og klæði hann upp í fötin mín... við niðrí bæ og hann ekki einu sinni spurður um skilríki -hneigi mig-
Við sitjum lengi og spjöllum um lífið og tilveruna, Hebbi játar að þessi lífsstíll sem fólkið inni á Kaffibarnum tilheyrir heillar hann og ég sé að þetta fer honum vel.
Eftir spjallið ákveðum við að fara að labba og skoða meira af Kaffibarnum og hver haldiði að standi fyrir framan mig en ekki FALLEGASTI KARLMAÐUR VERALDAR, úff, hann er reyndar með öðru fólki þannig að við segjum bara, leiter allígeiter og segjum bæ. Við Hebbi förum heim og poppum... ég ennþá í sæluvímu eftir þessa sjón -roðnar-

Thursday, 18 November 2004

Frost á Fróni

mínustíugráðurácelsíus hjá Kringlunni klukkan tíu í morgun, Baldur, Freyja og Frigg!!

Wednesday, 17 November 2004

Viðskiptavirnir frá Útgarði!!

Elsku bestu viðskiptavinir Kaffitárs, okkur afgreiðslufólkinu finnst ótrúlega þæginlegt þegar þið segið í gemsan: Augnablik ég er að panta kaffi hinkraðu aðeins, svo pantiði kaffi og haldið síðan áfram að tala við mömmu. Flýtir fyrir og minkar líkur á misskilningi. Takk

Tuesday, 16 November 2004

Drukkinn munnur mælir frá hjartans brunni.

Þessi setning er svo sönn ég missi út úr mér alls kyns sannleik þegar ég er drukkinn, úff, já það geri ég... sagði alltof mikið síðustu helgi til dæmis hehe en margt sem ég hef setið á lengi og viljað segja líka.

intervjú

* Jamm, svo þú ert þessi margumtalaði Natan?
- Það er rétt:)
* Og þú er svíi, ekki satt?
- Sko það er alveg búið að ræða þá spurningu nóg... ég er íslendingur sem hef farið víða!!
* En þú talar sænsku?
- Ja, det gör jag, självklart
* Hvernig datt þér til hugar að fara að blogga?
- Well, nenni ekki að senda bréf, þetta er skemmtilegra!
* Ertu í skóla eða ertu bara að lúserast?
- Ég er að vinna sem kaffibarþjónn, það er sko ekkert lúserastarf -móðgast- Ég geri örugglega kommbakk einn daginn í skóla, hver veit.
* Kaffi hvað!
- Kaffibarþjónn, eða Barista á ensku, ég vinn ekki með áfengi heldur sérhæfum við okkur í gúrmei kaffi.
* Nú ertu kynvillingur, ertu þá eins og stelpa?
- Fordómar!! Ég er nákvæmlega sá sami og áður nema tala núna um það sem ég hugsaði áður :) "Ég er eins og ég er"
* Hvaða fólk fær þig til að missa jafnvægið af hrifningu?
- Granna létt massaða stráka, með dökkt, stutt hár elska ég, eða hippalegar stelpur með sítt liðað ljósdökkt hár.
* Sénsinn að þú finnur þannig ástvin!
- Maður má nú dreyma!
* Náttföt eða nakinn?
- -roðnar- náttföt eru óþæginleg, móðir mín fæddi mig nakinn og þannig líður mér best!
* Natan, hvaða nafn er það??
- Natan er nafn sem mig dreymdi.

* Tónlist?

- Elska: Scissor Sisters, Violent Femmes, Nordman, Slowblow, Adem, White Stripes. Var bent á að kíkja á Interpol... geri það um leið og tækifæri gefst.
* Jæja kall, takk fyrir spjallið.
- Mín var ánægjan frú Stella.

Monday, 15 November 2004

Jólaskraut og vangaveltur

Hvað gerir maður þegar maður er á djamminu, síminn bilaður og maður loksins þorir að tala við manneskju sem maður hefur verið yfir sig heillaður af í langan tíma... gefur e-mailið. Ekki deyr Natan ráðalaus.
Já kæru vinir ég starði ekki bara á fórnalambið heldur gaf ég honum e-mailið mitt líka, ef ´
ég bara gæti vitað hvað aðrir hugsa, kannski vill hann ekkert hitta mig aftur en þorir ekki að segja það, kannski vill hann það en ég þori ekki að spyrja... hálf feiminn sjálfur. Erfitt líf maður! En eitt er víst, fagur er hann (roðnar niðrí tær)

Svo erum við búin að skreyta í vinnunni, en bara svona vetrarskraut, snjókorn og stjörnur, ekkert sem örvar jólaskapið... þökk sé ásunum. Gott að vera kominn aftur heim í Kringluna.

Ég er eins og ég er

Ég Mig Mér vantar þetta lag á geisladisk... Ekki lengur, takk Lína

Ég er eins og er,
hvernig á ég að vera eitthvað annað ?
Hvað verður um mig
ef það sem ég er bölvað og bannað ?
Er það líf mitt, að fela mig og vera feiminn,
mitt líf var það til þess sem ég kom í heiminn ?
Fúlt finnst mér það líf að fá ekki að segja:
Ég er eins og ég er !

Ég er eins og ég er,
ég vil ekkert hrós, ég vil enga vorkun.
Mér líkar mitt lag,
jafnvel þótt öðrum þyki það storkun.
En þeir um það, þetta er lagið mitt á lífsins morgni,
hvernig væri að sjá það frá því sjónarhorni.
Fúlt er felumanns líf fyrr en er hrópað:
Ég er eins og ég er !

Ég er eins og ég er,
og hvernig ég er alveg á hreinu.
Ég er eins og ég er
og biðst ekki afsökunar á neinu.
Þetta er eitt líf, þettar er eina lífið sem við eigum
eitt líf og það verður ekkert líf í leynum.
Ljúft veður það líf að láta það flakka:
Ég er eins og ég er !


Sunday, 14 November 2004

Raddlaus róni

Risaball hýrra íslendinga var haldið í nótt, fúff, vá, orðlaus...

Byrjaði heima, átti smá gin og tonic, fékk mér frosið brennivínstaup, og svo eldurís... jahérna! almáttugur! og jósafína! Þetta þrælvirkaði, fékk svo bjór við innganginn og seinna rann einn tequila niður... Dansaði ég? Er þetta spurnig? Ég missti mig, söng úr mér röddina, dansaði af mér rassgatið, og starði á... -roðna- ...well starði bara, segi ekki meir...

Núna líður mér nákvæmlega eins og ég á skilið, haha, sé ekki eftir neinu!

Saturday, 13 November 2004

Logn í lífi Natans

Mér hefur sjaldan liðið eins vel þegar ég er lasinn, margt hefur gengið á og ég er loksins núna að lenda eftir mikið streituflug.

Fyrir þá sem ekki þekkja mig þá er ég líkamlega tuttuguogeins árs en andlega hliðin á mér er aðeins sex mánaða. Fyrir þann tíma var ég þræll kirkjunnar, einmanna kvennabósi, studdi þrælkun dýra, og tók til þegar mér var skipað...

Nú er öldin önnur nú er ég lífsglaður ásatrúarmaður, með einstakar kynhvatir og et einungis það sem fæðist og deyr í frídómi, síðan þríf ég bara þegar mér sýnist. Þessi endurfæðing tók mikið á og er nú loksins nýju hugtökin, tilfinningarnar og allt hitt sem fylgir farið að ritast inn í kerfið og fæ ekki sjokk í hvert sinn er ég segi upphátt það sem ég aðeins þorði að hugsa hér áðurfyrr.