Thursday, 30 December 2004

Afhverju þarf fólk að vera ósammála mér...

Arrg, þó svo að ég sé feiminn og segi aldrei nei þarf ekki að misnota vináttu mína og góðsemd.

Wednesday, 22 December 2004

Ég féll fyrir ljósmynd!!

Ekki er allt sem sýnist, ekki þú ekki ég erkki vinir okkar, maður getur aldrei vitað hvort maður er að sjá allar hliðar hvers máls...

Það sem ég á við er ástæður fólks á gjörðum þess. Þegar einhver er góður við mig, er hann
þá góður við mig af vináttuástæðum eða er annar tilgangur með góverkunum. Vill manneskjan greiða á móti? eða safna punktum uppí framtíða greiða? eða kannski bara vinna veðmál?

Það er víst ekkert hægt að gera í þessu, ef ég er með vinum mínum labba svo í burtu, hvort er þá talað fallega eða ila um mig?? Eitt er víst að það fæ Ég hugsanlega aldrei að vita... nema einhver missi það útúr sér.

Trust a few fear the rest!!

P.S. Er lúðalegt að verða hrifinn af ljósmynd af menneskju sem maður hefur aldrei hitt né talað við?? Mér var líkt við Amelie um daginn, er það ekki soldið hennarlegt að falla fyrir ljósmynd?? Er ég karlkyns Amelie?? Fæ ég þá ást og frábært kynlíf bráðum??

Úff þetta líf!

Monday, 20 December 2004

Hmmmm??

Þegar mér langar að hitta manneskju þá reyni ég að fá hana með mér á kaffihús, í heimsókn til mín, fara sjálfur í heimsókn eða bara msn-ast.

Þeir, Þær og Þau sem vilja hitta mig fara alltaf í vinnuna til mín...

Ef ég væri kennari, myndi þá fólk koma að trufla kennsluna, þegar ég er að vinna er ekki séns að ég geti talað við fólk, þó svo að ég sé bara kaffibarþjónn þá er ekki þarmeð sagt að ég geti hætt að vinna og tekið mér pásu hvenær sem er.

Ef fólk vill hitta mig þá vil ég geta hitt það á móti, ég er með sófa og tvo stóla í stofunni minni, kaffikönnu og svo á ég tónlist, getur verið mjög kósý og jafnvel skemmtilegra að hitta mig heima en á Kaffitári. Nema að ég sé það leiðinlegur að fólk vilji bara horfa á mig í vinnunni...

Allir í heimsókn til Þrumusteins!

Gjafir og regnbogar

Í gær vaknaði ég alltof seint og drattaðist í vinnuna, fattaði að Hebbi frændi væri með húfuna mína og trefilinn svo ég varð að taka strætó. Þið skiljið seinna hvað þetta kemur blogginu við...

Í matarhléinu mínu fór ég í ECCO og var að tala við áslaugu afgreiðslustúlku um að ég þyrfti að fá mér hlýrri skó og sýndi henni hina skóna mína svona létt. Hún sá að það var sprunga í sólanum og spurði mig hvað ég hefði átt skóna lengi og ég sagði sjö mánuði. -"Skórnir eiga ekkert að brotna svona þú færð nýja skó!" sagði hún ákveðið. Ég var alveg í klessu ég kom þarna til að kaupa skó en fæ þá líka í leiðinni mína skó bætta því þeir voru léleg hönnun. Núna er ECCO og starfsfólk þess í miklu uppáhaldi hjá mér og ég elska þau. Ekki er verra að það er gaman að horfa á þau... allavega eitt þeirra... ég er ekki að tala um frænku mína!

Seinna um kvöldið vantaði mér frímerki og fór í IÐU, sæti afgreiðslumaðurinn var ekki að vinna, en það breytir engu svosem, ég fór að segja við afgreiðslukonuna sem er einnig eigandinn að mér væri svo kallt því ég væri húfulaus... hún gaf mér "Mjólk er góð"-húfu sem er mjög hlý og æðislega mjúk. 'eg hefði átt að fara í fleiri búðir í gær, fólk var greinilega í miklu gefaÞralli-stuði.


Ég fór svo áðan í 10-11 til að kaupa mér morgunkorn... varð hissa á því að augun mín leituðu ekki að bragðbesta morgunkorninu heldur var ég að leita að morgunkorni með leikfangi inní, svona ókeypis. Sá þá að Lucky-Charms regnboginn, sá sem er í lógóinu er gayfáninn en ekki alvöru sjó lita regnbogi, hafðiði líka tekið eftir að regnbogi Pink Floyd er gay-regnboginn? Skondið þetta.

Alvöru ÖrkinhansNóa-Regnbogi er með litunum Rauður, Appelsínugulur, Gulur, Grænn, Indigo, Blár og Fjólublár
Gayfáninn hins vegar er ekki með indigo. Þar hafiði það.

Saturday, 18 December 2004

10-11

Ef þú kæri lesandi hefur komið í tíuellefu nýlega hefur þú kannski tekið eftir nýju aðstoðslínunni þeirra. ..

Ég var í tíuellefu fyrir nokkrum dögum, rétt fyrir lokun og ekkert að gera, ég fann mér vörurnar mínar og valhoppaði í átt að kassanum, þegar þangað var komið var enginn starfsmaður, svo ég fór að lesa á miða sem festur var á hann:
Fannstu allt sem þig vantaði?
Ef ekki getur starfsmaður á kassa hjálpað þér.
Þetta fannst mér sniðugt og sá að starfsmaðurinn var á leið til mín, einnig hann var valhoppandi líkt og lítil alpastelpa. -"Fannstu allt sem þig vantaði?" var setningin sem barst til mín í stað hinnar venjulegu -"Var það eitthvað fleira?" sem jú getur varla átt við annað en sígarrettur, nema hvað að nýja setningin á við um allar vörur verslunarinnar.
Ég hélt ég mundi springa úr hlátri þegar ég heyrði þetta því strákurinn á kassanum var ekki svona gaur sem myndi detta þetta sjálfur til hugar :) og það sem fyndnast var, var að ég var einmitt nýbúinn að ljúka við að lesa þessa sömu setningu.

Sniðugt þetta og frumlegt finnst mér, áfram tíuellefu!

Tuesday, 14 December 2004

Aðfangadagur Piparsveinsins

Ef að jólin væru hátíð friðar og frelsis þá liti aðfangadagurinn komandi svona út hjá Þralli

-"Bjölluhljóð eins og í draumasenum í bíómyndum"-

Snemma aðfangadags vaknar Þrallur við vekjaraklukkuna, ýtir á snúshnappin og sefur aðeins lengur. Næst þegar vekjaraklukkan í símanum æpir á hann drattast hann á lappir, skellir sér í hressandi sturtu, klæðir sig í jólavinnufötin, burstar tennurnar vel og vandlega og fær sér heitan, ljúffengan jólahafragraut.

Þarnæst fer hann í hlýju mosagrænu úlpuna sína, skó, húfu, gyðingatrefil og tveggja þumla vettlingana sína. Gengur af stað út í mjallhvítan jólasnjóinn og andar að sér köldu frísku aðfangadagslofti. Ekkert er betra en smá kuldi til að losna við hálfþynkuna sem stafar af rauðvínsdrykkju kaffibarþjónanna eftir vinnu kvöldið áður. En meir um það síðar.

Eftir vinnu fer hann heim kveikir á sjónvarpinu, skellir vídjómynd í tækið, setur samt ekki á plei, leggur sig í einn til tvo klukkutíma, vaknar svo, sest upp í rúminu, tekur upp fjarstýringu og ýtir á plei, Home Alone 1 er myndin sem byrtist á skjánum, Þrallur fyllist gífurlegri löngun til að sprauta vatni á útitröppurnar, festa málningardollu fyrir ofan dyrnar og alls kyns stórhættuleg prakkarastrik eins og litli drengurinn í myndinni.

Um leið og myndin er búin hlustar hann einu sinni á "Ég er eins og ég er" á meðan hann klæðir sig aftur í útifötin. Hann ætlar nefnilega að taka sér langann göngutúr kringum tjörnina þar sem örugglega ekki nokkur sála er úti á þessum tíma aðfangadags. Hann vill fyllast sömu tilfinningu og Kalli sem var einn í heiminum, sú saga var í miklu uppáhaldi hjá Þralli, þegar hann var yngri en í dag.

Svo þegar jólagöngutúrinn er búinn er best að fá sér smá snarl, jólamat, en ekki þennan hefðbundna, Þrallur borðar ekki kjöt þannig að honum langar helst af öllu í smá sushi eða kannski kartöflugratín. Að því loknu ætlar hann að fara að undirbúa jólakvöldkaffið fyrir Haffa og Örnu sem ætla að kíkja í heimsókn eftir jólaserimóníu fjölskyldna þeirra.

-"Bjölluhljóð eins og í draumasenum í bíómyndum"-

Þessi 20 jól sem ég hef upplifað hingað til hef ég: Verið á Hofsósi ásamt báðum foreldrum mínum, Reykjavík með bara mömmu, Garðabæ, Bäraregatan Norrköping, Viking Line skemmtiferðaskipi, Silja Line skemmtiferðaskipi, Reykjavík með pabba, með mömmu í Söderköping, hjá systrunum í Mora, Hólmavík með pabba, Schalegatan Norrköping með mömmu, Bråddgatan Norrköping með mömmu og fleira...
Ég vona að ég fái að upplifa þennan draum því það er ekki víst að ég verði piparsveinn miklu lengur og ekki get ég gert þetta,þegar ég verð kominn með fjölskyldu, þá vil ég eiga eðlileg jólajól.

Monday, 13 December 2004

Góðan daginn Heiðar!!

Smá einkahúmor...

Thursday, 9 December 2004

Argasta læknakerfi!

Ég hef alla tíð verið misskilinn og hataður af læknum, sendi örugglega frá mér frískleikabylgjur sem láta lækna missa allan áhuga á mér.

Vil taka það fram að ég er ekki að ásaka læknirinn sem manneskju heldur ekki ráðast á neinn, finnst bara leiðinlegt að vera hent burt eins og ég sé rúmfatalagersbæklingur.

Þegar ég var saklaus tveggja ára snáði, var ég mjög veikur, það var farið með mig til læknis en ekkert fannst... hann er örugglega með flensuna var svarið við grenjandi barninu sem var að farast úr sársauka. Aftur og aftur var ég skoðaður, en ekkert kom í ljós... þar til dag einn að einhver læknagaur sá mig, spurði hvar sársaukinn væri, ýtti þar svo af öllu afli og sagði að þetta barn þarf að fara í aðgerð núna, hann er kviðslitinn!... er ennþá með ör, sem bara fáir fagrir fá að sjá...

Alla bernsku mína eftir þetta var ég mjög oft veikur, ælandi og vælandi, mamma fór með mig uppá sjúkrahús að meðaltali einu sinni í mánuði frá fimm ára aldri, læknarnir fundu alls konar flensur að kenna um en að lokum var ég greindur með mjólkursykuróþol... eftir að hafa verið reglulega veikur í mörg ár, þegar þetta kom loksins í ljós var ég níu ára. Ég hvorki át né drakk mjólk í heilt ár, en svo batnaði óþolið. Kom síðan aftur í sumar.

Núna á mánudaginn síðasta fékk ég þessa svakalegu hálsbólgu, var bara heima í kósý fíling með vini mínum Haffa að horfa á Big Fish... ekki besta mynd sem ég hef séð... enívei! Þriðjudaginn gat ég hvorki borðað né drukkið, var að deyja, fór ekki í vinnuna að sjálfsögðu. Svaf síðan ekkert um nóttina og ákvað að fara til læknis morguninn eftir.

Það er kannski betra að segja frá því að ég hef ekki orðið veikur síðan níu ára þannig að ég hringdi í vinnuna og spurði hvað ég ætti að gera... fara á næstu heilsugæslustöð var svarið. Ég klæði mig, fer í skó og fer í Domus Medica sem var það fyrsta sem mér datt til hugar. Konurnar þar á þjónustuborðinu voru voða uppteknar við að slúðra en ákváðu eftir smá stund að gera smá hlé og aðstoða manneskjuna sem truflaði samræðurnar, þær benda mér á að ég ætti að fara að hitta heimilislæknirinn minn... bamm bamm bamm... Þrallur á engann heimilislækni... bamm bamm bamm... Þá segja þær mér að ég þurfi að sækja um einn slíkan á tryggingastofnun. Ég segist ekki hafa tíma fyrir það þar sem ég þurfi læknisaðstoð strax, að ég sé ekki búinn að borða í tvo daga. Þær benda mér þá á að fara á bráðamóttökuna.

Fúll og fárveikur geng ég í áttina að bráðamóttökunni og þegar þangað er komið er mér að ég sé á röngum stað, sagt að fara til heimilislæknisins míns... bamm bamm bamm... ég á engann heimilislækni!... bamm bamm bamm... einn læknirinn þarna neyðist til að skoða mig, gerir tveggja sekúndna skoðun og gefur mér lyfseðil. Og labbar, eða frekar hleypur í burtu. Ég lít á lyfseðilinn í von um að það standi á honum hvar ég eigi að leysa hann út... hef aldrei gert svona áður en það stendur ekki. Fæ að lokum lyfið mitt og fer heim.

Daginn eftir, fimmtudag, fatta ég að ég þarf læknisvottorð fyrir veikindunum... fer í tryggingastofnun... -"Ha?? Þú færð engan heimilislækni hér." Ég segi konunni að mér var bent á að fara til þeirra en hún segir ekki geta hjálpað mér. Þarnæst fyllist ég reiði, vonsvikni og uppgjafartilfinningu, sest og segist ekki vera búinn að borða í þrjáoghálfan dag og að enginn vilji hjálpa mér bara því ég eigi ekki heimilislækni. Konan vorkennir mér og fer og finnur fyrir mig hvert ég á að fara og hvað ég eigi að gera þar.

Ég hringi í númerið hjá heilsugæslunni sem hún bendir mér á og fæ tíma strax og fer þangað, fæ heimilislækni og vottorð fyrir vinnuna. Læknirinn getur samt ekki skoðað sjúkdóminn sjálfan því ég var kominn á fíklalyf, sem læknirinn sem hafði engan tíma fyrir mig hennti í mig.

Gat byrjað að borða aftur um kaffileitið á fimmtufdaginn. Nú sit ég hér, ennþá á fíklalyfjum og veit ekkert hvað var að mér. Endurtek að ég hata ekki alla lækna, finnst ég bara ekki hafa gert neinum neitt það svakalegt að eiga þetta skilið... eða hvað??

Monday, 6 December 2004

Foreldrakvöld

Foreldrar geta verið svo frábærir, það var foreldrakvöld í gær hjá Ungliðum Samtakana 78, og það mætti gomma af foreldrum, aðallega mömmur samt. Þau töluðu um hvað þau væru stolt af börnunum sínum, játuðu líka að hefa fengið sjokk þegar barnið kom út úr skápnum. Vildi að mínir foreldrar hefðu komist en mamma er náttúrulega í Svíaríki og pabbi útí sveit, þau verða bara með símleiðis næst, hehe.
Ég átti erfitt með að grenja ekki þegar ég sá þessa yndislegu foreldra tala um samkynhneigð börnin sín og ein mamman sagði að helst vildi hún segja öllum frá því að hún ætti samkynhneigðan son, það eru nú ekki allir svona heppnir.
Þegar tvær manneskjur ákveða að eignast barn þá verða þau að íhuga að barnið gæti, fæðst fatlað, ofvirkt, einhverft, örfhent og/eða samkynhneigt. Ef manneskjan sem íhugar barneignir getur ekki hugsað sér að elska einstakling úr þessum hópum þá á manneskjan bara að fá sér fiskabúr!
Ég vona að einn daginn eigi allir jafn góða foreldra og ég!!

Sunday, 5 December 2004

Pöbbakönnun

Ég og Kolbrún Kaffitár fórum ásamt vinkonu hennar Guðrúnu á pöbbarölt á laugardagskvöldið, og þá meina ég Pöbbarölt!
Mér langar að segja frá skoðun minni á stöðunum sem við fórum á.

Dillon: Byrjuðum á Dillon sem er í gömlu húsi á laugarveginum, á sumrin er hægt að sitja úti í garðinum og drekka bjór. Dillon er mátulega sjúskaður, soldið trukkastemming. Andrea Jóns var að þeyta skífunum, hún situr uppi á hillu þegar hún er þarna til að fleiri geti komið og hlustað á hana, enda besti plötusnúður Íslands að mínu mati... Lifi amma rokk!!

Ölstofan: Mér finnst Ölstofan ljótur en kósí staður, nýtískulegur bar en gamaldags veggskraut. Það er amt flott að það eru mikið af sætum. Við fórum þarna og vorum spurð um skilríki (er það skrifað svona) Við öll þrjú ´83 og hleypt inn, settums og ég fór á barinn en þeir neituðu að selja mér áfengi því það væri 22 ára aldurstakmark inn á staðinn... þá spyr maður sig afhverju okkur var hleypt inn til að byrja með!! Þessi staður hefur líka visst tilfinningagildi fyrir mér þar sem ég hitti fyrstu ástina þarna... -roðnar-

11: Ellefan er staður sem ég hef bara komið á tvisvar, annað skiptið var ég blind fullur, klæddur sem Zoolander og hitt skiptið var á laugardaginn. Ég er ekki búinn að komast að því hvað heillar við Ellefuna, kannski er það fussball spilið á efri hæðinni

Kaffibarinn: Kaffibarinn er frábær, tónlistin fer mér og skemmtilegt að sitja á efri hæðinni og spjalla, gerðum það lengi í gær. Húsgögnin þar minna á íbúðina mína. Ég og Kaffibarinn höfum sama stíl. Ókosturinn við þennan stað er að það er oft röð og vinum dyravarðanna hleypt inn á undan.

Grand Rokk:
Grand Rokk er góður staður fyrir tónleika, ég sá einu sinni hljómsveitina Hjálmar spila þarna og alveg féll fyrir þessum stað.

Celtic Cross:
Það skemmtilegasta við Celtic Cross að mínu mati er litla herbergið með kirkjubekkjunum, borðið við bekkina er líkkista og svo er orgel líka, svo hittir maður ólíklegasta fólk þarna.

Sirkus:
Sirkus er staður asnalega fólksins, hehe, fólk sem gengur í lopapeysu, er með hormottu og er hálf hippalegt. Ég fer oft á Sirkus og er hálf asnalega hippalegur sjálfur, var að eignast ýkt flotta lopapeysu af afa í gær, er samt ekki með hormottu.

Prikið:
Prikið er staður sem við á Kaffitár stundum á fimmtudögum eftir vinni, fáum okkur Prikbjór á 250 krónur. Prikið er einn af mínum uppáhalds stöðum, fór oft þangað með krökkunum á Maru. Hitti einmitt Hrefnu Rósu súperkokk og Iðunni þjón þarna í gær, við vorum að vinna saman á Maru. Prikið er líka með góðar franskar!

Nelly´s:
Nelly´s er staður með hundleiðinlega tónlist, en samt er hann mjög vinsæll og hálfkrúttlegur. Ég fór oft þarna þegar ég var skápur því þá var enginn gaybar og ég horfði á alla hommana dansa á Nelly´s.

Barir sem ég stunda aldrei eru, Sólon, Glaumbar, Hverfisbarinn, Pravdabarinn, Palace og Felix.
Segi svo næstu helgi skoðun mína á Jóni Forseta, Café Cozy, De Boomkikker, Hressó, Kaffibrennslunni, Café Cultura, Þjóðleikhúskjallaranum, Mojito o.fl.
Góða nótt

Friday, 3 December 2004

Veðurvesen

Veðrið á klakanum getur ekki ákveðið sig, eina stundina er brjáluð snjókoma og næstu er snjólaust og slabb, svo snjóar aftur oní slabbið og Frigg búin að búa til meiriháttar grjónagraut handa Óðni.
Ég var ýkt duglegur í gær, skellti mér í World Class eftir vinnu. Þeir sem ekki enn hafa séð mig teigja á ættu að hringja í mig næst þegar ykkur vantar skemmtun, ég er stirðari en Stekkjastaur, hef aldrei hitt neinn stífari en mig... hehe... þorir einhver að reyna að toppa mig í stirðleika??

Það eru nú til allskyns keppnir á klakanum, afhverju ekki "landsins stirðasti"?? Það er nú til Fitness mót, Herra Ísland, Glíma og allskonar, ég vil að þessi keppni verði tekin upp... og hafa veglega vinninga!!