Tuesday, 14 December 2004

Aðfangadagur Piparsveinsins

Ef að jólin væru hátíð friðar og frelsis þá liti aðfangadagurinn komandi svona út hjá Þralli

-"Bjölluhljóð eins og í draumasenum í bíómyndum"-

Snemma aðfangadags vaknar Þrallur við vekjaraklukkuna, ýtir á snúshnappin og sefur aðeins lengur. Næst þegar vekjaraklukkan í símanum æpir á hann drattast hann á lappir, skellir sér í hressandi sturtu, klæðir sig í jólavinnufötin, burstar tennurnar vel og vandlega og fær sér heitan, ljúffengan jólahafragraut.

Þarnæst fer hann í hlýju mosagrænu úlpuna sína, skó, húfu, gyðingatrefil og tveggja þumla vettlingana sína. Gengur af stað út í mjallhvítan jólasnjóinn og andar að sér köldu frísku aðfangadagslofti. Ekkert er betra en smá kuldi til að losna við hálfþynkuna sem stafar af rauðvínsdrykkju kaffibarþjónanna eftir vinnu kvöldið áður. En meir um það síðar.

Eftir vinnu fer hann heim kveikir á sjónvarpinu, skellir vídjómynd í tækið, setur samt ekki á plei, leggur sig í einn til tvo klukkutíma, vaknar svo, sest upp í rúminu, tekur upp fjarstýringu og ýtir á plei, Home Alone 1 er myndin sem byrtist á skjánum, Þrallur fyllist gífurlegri löngun til að sprauta vatni á útitröppurnar, festa málningardollu fyrir ofan dyrnar og alls kyns stórhættuleg prakkarastrik eins og litli drengurinn í myndinni.

Um leið og myndin er búin hlustar hann einu sinni á "Ég er eins og ég er" á meðan hann klæðir sig aftur í útifötin. Hann ætlar nefnilega að taka sér langann göngutúr kringum tjörnina þar sem örugglega ekki nokkur sála er úti á þessum tíma aðfangadags. Hann vill fyllast sömu tilfinningu og Kalli sem var einn í heiminum, sú saga var í miklu uppáhaldi hjá Þralli, þegar hann var yngri en í dag.

Svo þegar jólagöngutúrinn er búinn er best að fá sér smá snarl, jólamat, en ekki þennan hefðbundna, Þrallur borðar ekki kjöt þannig að honum langar helst af öllu í smá sushi eða kannski kartöflugratín. Að því loknu ætlar hann að fara að undirbúa jólakvöldkaffið fyrir Haffa og Örnu sem ætla að kíkja í heimsókn eftir jólaserimóníu fjölskyldna þeirra.

-"Bjölluhljóð eins og í draumasenum í bíómyndum"-

Þessi 20 jól sem ég hef upplifað hingað til hef ég: Verið á Hofsósi ásamt báðum foreldrum mínum, Reykjavík með bara mömmu, Garðabæ, Bäraregatan Norrköping, Viking Line skemmtiferðaskipi, Silja Line skemmtiferðaskipi, Reykjavík með pabba, með mömmu í Söderköping, hjá systrunum í Mora, Hólmavík með pabba, Schalegatan Norrköping með mömmu, Bråddgatan Norrköping með mömmu og fleira...
Ég vona að ég fái að upplifa þennan draum því það er ekki víst að ég verði piparsveinn miklu lengur og ekki get ég gert þetta,þegar ég verð kominn með fjölskyldu, þá vil ég eiga eðlileg jólajól.

4 comments:

Ìsnornin said...

Þetta hljomar yndislega i minum eyrum. 'Eg er með eina matar hugmynd handa þer, sætarkarteflur (ameriskar) með halloumiosti. 'Eg get sent þer uppskryftina ef þu villt. Sjalf ætla eg að borða shusi tertu a föstudaginn mmmmmmmmmm nammi namm. Við mæðgur skreppum til þin i huganum a aðfangadag. Gerðu nu ekki of mikil prakkarastrik;)

Þrallur said...

Takk Birna mín, það væri æði ef þú vildir senda mér uppskriftina.

Anonymous said...

snlid! Ég vona líka að þú fári að upplifa þennan draum þinn! Ég væri sko alveg til í að fara í gönguferð um miðbæinn kl 6 eða 7! Það er örugglega frábært...friður og ró eins og það á að vera á jólunum!!

Anonymous said...

OO þetta eru geðveikr kósy jól sem þú ætlar að halda...væri alveg til í að finna hvernig væri að vera ein í heiminum því að palli var einn í heiminum var líka uppáhalds bókin mín sem krakki...vei!! hafðu það gott á aðfanga dag þar til ég kem auðvitað og við munum jamma og djúsa eða bara sitja og kjafta :D
kv Arna