Foreldrar geta verið svo frábærir, það var foreldrakvöld í gær hjá Ungliðum Samtakana 78, og það mætti gomma af foreldrum, aðallega mömmur samt. Þau töluðu um hvað þau væru stolt af börnunum sínum, játuðu líka að hefa fengið sjokk þegar barnið kom út úr skápnum. Vildi að mínir foreldrar hefðu komist en mamma er náttúrulega í Svíaríki og pabbi útí sveit, þau verða bara með símleiðis næst, hehe.
Ég átti erfitt með að grenja ekki þegar ég sá þessa yndislegu foreldra tala um samkynhneigð börnin sín og ein mamman sagði að helst vildi hún segja öllum frá því að hún ætti samkynhneigðan son, það eru nú ekki allir svona heppnir.
Þegar tvær manneskjur ákveða að eignast barn þá verða þau að íhuga að barnið gæti, fæðst fatlað, ofvirkt, einhverft, örfhent og/eða samkynhneigt. Ef manneskjan sem íhugar barneignir getur ekki hugsað sér að elska einstakling úr þessum hópum þá á manneskjan bara að fá sér fiskabúr!
Ég vona að einn daginn eigi allir jafn góða foreldra og ég!!
Monday, 6 December 2004
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Tek undir þetta.
mættti bæta við "örvhent" í listann. Var með kennara sem bannaði örvhentum að skrifa með vinstri á töfluna.
Med hilsen fra Köben ;)
Post a Comment