Ef þú kæri lesandi hefur komið í tíuellefu nýlega hefur þú kannski tekið eftir nýju aðstoðslínunni þeirra. ..
Ég var í tíuellefu fyrir nokkrum dögum, rétt fyrir lokun og ekkert að gera, ég fann mér vörurnar mínar og valhoppaði í átt að kassanum, þegar þangað var komið var enginn starfsmaður, svo ég fór að lesa á miða sem festur var á hann:
Fannstu allt sem þig vantaði?
Ef ekki getur starfsmaður á kassa hjálpað þér.
Þetta fannst mér sniðugt og sá að starfsmaðurinn var á leið til mín, einnig hann var valhoppandi líkt og lítil alpastelpa. -"Fannstu allt sem þig vantaði?" var setningin sem barst til mín í stað hinnar venjulegu -"Var það eitthvað fleira?" sem jú getur varla átt við annað en sígarrettur, nema hvað að nýja setningin á við um allar vörur verslunarinnar.
Ég hélt ég mundi springa úr hlátri þegar ég heyrði þetta því strákurinn á kassanum var ekki svona gaur sem myndi detta þetta sjálfur til hugar :) og það sem fyndnast var, var að ég var einmitt nýbúinn að ljúka við að lesa þessa sömu setningu.
Sniðugt þetta og frumlegt finnst mér, áfram tíuellefu!
Saturday, 18 December 2004
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment