Sunday, 14 November 2004

Raddlaus róni

Risaball hýrra íslendinga var haldið í nótt, fúff, vá, orðlaus...

Byrjaði heima, átti smá gin og tonic, fékk mér frosið brennivínstaup, og svo eldurís... jahérna! almáttugur! og jósafína! Þetta þrælvirkaði, fékk svo bjór við innganginn og seinna rann einn tequila niður... Dansaði ég? Er þetta spurnig? Ég missti mig, söng úr mér röddina, dansaði af mér rassgatið, og starði á... -roðna- ...well starði bara, segi ekki meir...

Núna líður mér nákvæmlega eins og ég á skilið, haha, sé ekki eftir neinu!

2 comments:

Anonymous said...

Hvern starðirðu á? Bannað að vera með svona leyndó á blogginu :)

Lingur said...

Ég giska á að þú hafir starað á ... Birnu og Dísu að dansa getnaðarlega? Eða Jóa Kalla? Eða Jón Þór vin minn? Eða DJ Andreu og Georg?

Þá eru upptaldir allir þeir aðilar sem ég þekki sem voru á þessu balli ...