Fólk hefur ýmis áhugamál, sumir eru í íþróttum, aðrir spila kana, vist eða canasta...
Ég safna, mitt aðaláhugamál er örugglega að safna! Ég hef alltaf safnað, öllu!, frímerkjum, viskaledrum, pónýhestum, törtles, umferðamerkjum, skátatreflum, asnalegum artí póstkortum, fönký nærbuxum!!, asnalegum fötum, skrítnum hlutum bara yfirleitt.
Sumir hafa oft velt fyrir sér hvernig ég fer að því að taka til einn daginn og næsta dag er íbúðin mín eins og eftir kjarnorkusprengju. Eina svarið sem ég finn er hirsluleysi, ég er að hugsa um að byrja að safna flottum og fönký hillum, skápum, kommóðum og kössum.
Ef einhvern vantar að losna við skemmtilegar hirslur þá skal ég með glöðu geði bæta því í safnið (vil samt helst ekki eitthvað fallegt og krúttlegt úr IKEA eða rúmfó).
Tuesday, 23 November 2004
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment