Monday, 15 November 2004

Jólaskraut og vangaveltur

Hvað gerir maður þegar maður er á djamminu, síminn bilaður og maður loksins þorir að tala við manneskju sem maður hefur verið yfir sig heillaður af í langan tíma... gefur e-mailið. Ekki deyr Natan ráðalaus.
Já kæru vinir ég starði ekki bara á fórnalambið heldur gaf ég honum e-mailið mitt líka, ef ´
ég bara gæti vitað hvað aðrir hugsa, kannski vill hann ekkert hitta mig aftur en þorir ekki að segja það, kannski vill hann það en ég þori ekki að spyrja... hálf feiminn sjálfur. Erfitt líf maður! En eitt er víst, fagur er hann (roðnar niðrí tær)

Svo erum við búin að skreyta í vinnunni, en bara svona vetrarskraut, snjókorn og stjörnur, ekkert sem örvar jólaskapið... þökk sé ásunum. Gott að vera kominn aftur heim í Kringluna.

1 comment:

Anonymous said...

hæhæ sæti sko ég vildi gefa þér komment á hvað og hvernig maður daðrar við sæta stráka en æi þú veist að frænka þin er komin á þann aldur að hún er hætt þessu öllu hehhehehehe djók hjá mér en hvað um að blikka hann og bjóða uppí dans eða hmmmmm heim og skoða myndir veit ekki allveg en ég get kanski reddað þessu ein dæginn fyrir þig sko svona er ég góð við þig:)) kossar og knús til þin