Ég var neyddur til þess að blogga í kvöld og ætla því að skrifa æðislegt blog, blog fyrir alla aldurshópa, allar kynhneigðir, reykingafólk og reyklausa, ástfangna og ástarsorgmædda og líka fyrir Heidda Huu sem ekki flokkast í neitt af þessu.
Íhugun stendur í gangi um að gera alla skemmtistaði, veitingahús og þvíumlíkt á Íslandi reyklaus... segja margir við því fussumsvei... þetta á aldrei eftir að ganga, reykingafólkið er í svo miklum meirihluta á svona stöðum!!
Hver ætli ástæðan sé fyrir því að reykingafólk sé í meirihluta??
1) Kannski vegna þess að margir reyklausir kjósa frekar við ungan aldur að vera heima því fyrstu reynslur þeirra af skemmtistöðum er að vakna daginn eftir angandi eins og afkvæmi öskubakka og bjórdósar.
2) Eða er það vegna þess að maður fær timburmenn dauðans? (ekki þessa flottu mössuðu timburmenn í hlírabol og þröngum gallabuxum -ónei- heldur feitu trukka trjábolakallana með bjórvömb og plömmer) Og þess vegna hanga reyklausir í heimapartíum.
3) Margir reykja bara á djamminu og á kaffihúsum, aðrir reykja þegar þeir þurfa að kyssa sætan reykingamann eins og ég hef oft gert... þetta leiðir ósjaldan til áframhaldandi reykinga og að lokum reykja allir sem eru á þessum stöðum (getum kannski ekki bjargað þeim sem reykja nú þegar en þeir sem ekki eru byrjaðir nenna varla út í kuldan til að byrja að reykja eða hvað?)
Starfsmenn skemmtistaða myndu líða mun betur í vinnunni ef reykleysa væri regla, reykingafólk væri að eitra bara fyrir sjálfum sér og fá frískt loft í leiðinni, góð leið til að fara á trúnó án þess að þurfa að fara í hlandlyktina inná klósti, færri brunablettir á fötum og töskum og færri brunasár, írskur vinur minn segist kynnast svo mikið af fólki þegar hann þarf að fara út í reyk sem er kostur.
En umfram allt þá fengi reyklaust fólk að vera það áfram, engar óbeinar reykingar, og reykingafólk fengi að halda áfram án nöldurs reyklausa fólksins.
Áfram Ísland!!
Thursday, 24 February 2005
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Þú gleymir að tala um hversu þjóðhagslega hagkvæmt það er að enginn reyki, það myndi spara heilbrigðiskerfinu marga milljarðana. Það er því mjög mikilvægt fyrir litla þjóð að spara í óþarfa útgjöldum sem stafa af heimsku almennings og eyða peningunum í eitthvað gagnlegt eins og menntakerfið sem er í stöðugri fjárþörf auk þess sem að stytta biðlista sjúkrahúsanna.
Ríkið græðir samt líka á reykingarfólki því það er að selja sígaretturnar sem leiðir til að þeir fá væntanlega gróðan af því.. svo deyr fólk fyrr sem þýðir að það þarf ekki að sjá fyrir þeim í ellinni.. þetta er allt planað.. Allt stórt samsæri..
Ég er samt algerlega með því að banna reykingar á opinberum stöðum.. þá væri t.d. auðveldara fyrir mig að hætta að reykja.. hehe..
Post a Comment