Friday, 11 February 2005

Foreldrar!!!

Kaffitár í Kringlunni er eins og margir vita undir rúllustiganum há Hagkaupum. Í gær þegar ég var á espressovélinni heyrðis allt í einu óhugnalegt barna-sársauka öskur frá rúllustiganum, engin stoppaði rúllustigan samt þar sem neyðarstansrofinn er snyrtilega falinn svo að það sé nú öruggt að ef eitthvað kemur uppá að það gerist nú almennilega, Lilja fyrrverandi verslunarstjóri társins í Kringlunni var að fá afgreiðslu og stökk fram og stöðvaði stigann höfum smá reynslu af þessu á tárinu.

Lilta telpan, kannski fjögra til fimm ára, sem átti þetta eymdaróp hafði fest annað stígvélið sitt í tröppunum, en einhver hefur náð að bjarga henni uppúr því en stígvélið fór í heilu lagi ásamt hluta af sokkabuxum stelpunnar ofaní stigan og festist þar, það var ekki möguleiki að sjá að þetta væri stígvél ef horft var ofanfrá. Fótur stúlkunnar bólgnaði upp en annars var hún heil.

Ég var að klára á vélinni og á leiðinni í mat þegar atburðurinn átti sér stað og fór í Hagkaup. ég var í svo miklu sjokki að ég var gráti nær og stóð og starði heillengi inní goskælirinn til að fela tárinn sem voru að reyna að brjótast fram. Ég skalf líka hrikalega í korter.

Viðgerðarmenn komu seinna til að ná stígvélinu uppúr og þurftu að skrúfa allan stigan í sundur, pæliði í því!!

Það gerast alltof oft óhöpp í þessum rúllustiga og þetta er bara einn af mörgum svona stigum, gamalt fólk dettur þarna ósjaldan og missir göngugrindur sínar. Elsku þið sem lesið þetta... allavega hér í Kringlunni eru lyftur útum allt og óþarfi að nota rúllustigann ef jafnvægið er ekki í besta lagi eða maður er með ung börn með sér, passiði börnin eða notiði lyftuna, stiginn át heilt gúmmístígvél og hefði ekki verið í neinum vandræðum með lítinn stelpufót!!! Passiði börnin ykkar í guðanna bænum,þau eru þess virði... hlustiði á mann sem kannski á aldrei eftir að njóta þess að eignast sitt eigið kríli!

A little girl, maybe four or five years old, got stuck yesterday in an escalator in the mall I work in. The escalator got a grip of her wellington and tried to pull her down, down where the sun doesn´t shine... but one of her parents pulled too with the power that only parents have and ended up victorious, but the escalator ate her wellington and half of her stockings.

I was so shocked, the café I work in is just beneath the escalator and we can always hear when some old lady falls down or something else happens but we never see it. I was just about to have lunch when this happened and went into the food store where I almost started to cry and had to pretend looking into the a shelf full of sodas for some time to hide the tears that struggled to come out.

Please oh please look after your children in the escalators or just take the elevator even though it takes five seconds longer... your kids are worth the extra time in the elevator!!!!

No comments: