Tuesday, 22 February 2005

Íslandsmót nálgast...

Dagana 11-13 mars verður íslandsmót kaffibarþjóna haldið fyrir framan verslun Hagkaupa í Smáralindinni. Markmið mitt í keppninni er að komast í eitt af sex efstu sætunum og fá að fara með til Seattle í apríl þar sem heimsmeistaramótið er haldið.

Mamma gaf mér glös undir frjálsa drykkinn minn í páskagjöf, svo er næsti höfuðverkur að finna flott þema fyrir mig, þarf allt að vera fullkomið... ég er kominn með svaka hugmynd að matseðli en ekkert verður opinberað... daddara...

Ég var að fá dómarablöðin frá innanhúsmótinu og þau voru jákvæð að mínu mati, gallarnir sem ég gerði eru eitthvað sem á að vera hægt að laga svo þetta reddast, þarf bara að sigrast á stressinu... skalf eins og ég veit ekki hvað síðast...

2 comments:

Anonymous said...

Ég er með þér í huganum, alltaf...
og það getur verið að ég hafi hugmynd sem getur hjálpað þér með temat fyrir mótið! Ég vona að við heyrumst fljótlega love syrran

Ìsnornin said...

Kæri vinur. Auðvitað attu eftir að vinna keppnina, þu ert nu vanur að geta það sem þu ættlar þer! Þetta með stressið er natturlega höfuðverkur utað fyrir sig, það er bara að muna að anda (bara og bara ju ju eg veit lett að segja og erfiðra að muna eftir þvi).
positivt tänkande þa reddast þetta!