Thursday, 7 December 2006

Bleh!

1. Það er dinglað hjá þér tvö að nóttu. Hver myndir þú vilja að það væri?
- Fljúgandi Póníhestur sem myndi fljúga með mig um heiminn.
2. Yfirmaður þinn segir að hann muni veita þér launahækkun ef ...
- Ekkert mál Marta mín!
3. Þú í hnotskurn:
- Appelsínugulur, snoðaður og ógó góður.
4. Hefur þú séð draug?
- Nei, bara tallð við þá.
5. Ánægður með líkama þinn?
- Vildi að ég væri loðnari á bringunni.
6. Ég myndi flytja til Akureyrar ef...
- Ef það væri ekki svona dýrt að fara á milli.
7. Staður sem þú hefur búið á og saknar:
- 101.
8. Vinna sem þú myndir aldrei starfa við, sama hvað þú fengir borgað:
- Boxari
9. Hljómsveit sem þér fannst "cool" þegar þú varst 13.
- Rednex
10. Þú vaknar upp eftir slæma martröð, í hvern myndir þú hringja?
- Haffa
11. Langar þér að eignast börn fyrir þrítugt?
- Svona um og eftir þrítugt.
12. Sterkasta minningin þín úr framhaldsskólanum:
- Heimavistarstundirnar allar!
13. Einhvern tímann verið ástfangin af maka vinar?
- nei
14. Mesta prakkastrik sem þú hefur gert í vinnunni?
- Dældi óvart bensíni á díselbíl, var samt óvart!
15. Hvorum foreldra þínum líkist þú meira, móðir eða föður?
- Föður (nema ef maður spyr mömmu)
16. Eitthvað sem þú hefur alltaf viljað læra að gera:
- Fara í handahlaup.
17. Enn vinur fyrrverandi maka?
- Já.
18. Hvar myndir þú vilja vera eftir 10 ár:
- Í lest að ferðast.
19. Eitthvað sem þú lærðir um sjálfan þig á þessu ári:
- Ég er bara eins og ég er og það þýðir ekkert að reyna að bæta eða breyta.
20. Hvað langar þér í afmælisgjöf?
- Tattú.
21. Nefndu þrjá hluti sem þú gerðir í dag?
- Vann, Hló og drakk jólabjór.
22. Það síðasta sem þú verslaðir fyrir þig?
- Jólabjór.
23. Er eitthvað hangandi undir baksýnisspegilnum í bílnum?
- Ég er á móti sjálfrennireiðum.
24.Hvað fékkstu þér í morgunmat?
- Hálfa bananabrauðsneið og ofnæmistöflu.
25. Hver í kringum þig er með flestu húðflúrinn:
- Vildi að það væri ég!
26. Hvaða þrjár hljómsveitir sást og heyrðir þú síðustu í:
- Sykurmolarnir, Carpenters og The Knife.
27.Hvað sefur þú að jafnaði í marga klukkutíma á sólahring?
- Helst 8+
28. Hefur þú einhvern tímann verið bundin?
- Hlítur að vera, man samt ekki.
29. Hvað hefðir þú frekar vilja vera gera þessa stundina?
- Spúna, er soldið þreyttur.
30. Hvaða nafn kemur fyrir fremst í símaskránni þinni?
- Addi Steini eins og hjá svo mörgum.
31. Hvenær varst síðast vitni af slagsmálum?
- Laugardaginn fyrir framan Pravda, ALDREI ÞESSU VANT!
32. Hvaða áfenga drykk drakkstu þú síðast?
- Jólabjór.
33. Finnst þér gott að láta toga í háríð þitt?
- Já, ef ég væri með það.
34. Nefndu þrjá staði sem þú myndir vilja ferðast til:
- Fyrrum Júgóslavíu, Kína og Japan.
35. Ertu góð/ur á skautum?
- Hata skauta!
37. Nefndu eitthvað sem þér myndi langa í en væri flokkað undir óvenjulegt.
- Fljúgandi alvöru Póníhest.
39. Hvað finnst þér um BRAD PITT?
- Hann var ótrúlega flottur í Fight Club.
40. Nefndu þann vin sem þú átt mest sameiginlegt með?
- Kolbrún og Haffi held ég haha!
41. Hvaða litur er á táneglunum þínum?
- Tánaglalitur.
42. Við hvern talaðir þú síðast við í síma?
- Lottókallinn.
43. Átt þú eitthvað með hauskúpu á?
- Nei því miður.
44. Hefur þú ferðast mikið innanlands?
- Allt nema Snæfellsnes.
45: Hefur þú ferðast til Afríku?
- Nei. Er soldið hræddur við afríku, svo mikið af asnalegum dýrum.
46. Nefndu þrjár manneskjur sem þú myndir treysta fyrir lífi þínu?
- Aðalsteinn, Ásgeir og Haffi.
47. Síðasta mynd sem þú sást?
- Delikatessen.
48. Hvar varstu þú þegar þú fékkst fyrsta kossinn?
- Róló Garðabæ.
49. Síðasta spil sem þú spilaðir?
- Game of Life.
50. Leður eða Latex?
- Leður.
51. Hefur þú fengið glóðurauga?
- Nei, sjö níu þrettán
52. Á hvaða videoleigu ferð þú helst á?
- Æ man ekki hvað hún heitir, Kolbrún kommentar það bara.
53. Hefur þú gengið í sokkabuxum?
- Já.
54. Þekkir þú einhvern sem er í fangelsi?
- Nei ekki svo ég viti.

Þetta var nú ekki erfitt!

3 comments:

Anonymous said...

á madur ad svara thessu???

Kolbrun Yr said...

Vídeóheimar!!!... og talaðiru í alvöru sídast vid lottómanninn í síma?? Það er geðveikt fyndið!:P

Anonymous said...

Varstu að meina mig?